Jump to content

Translations:Lemuria/19/is

From TSL Encyclopedia

Eins hrikalegar og þessar hamfarir voru fyrir milljónir sálna komust þær þó ekki í samjöfnuð við eyðileggingu brennifórna guðsmóðurinnar sem höfðu logað á altörum aðalmusterisins — lífgefandi eldur, merki guðdómleika hvers manns sem birtist að ofan sem að neðan. Því miður féll kyndillinn í duftið sem hafði verið látinn berast mann fram af manni. Klækjabrögð hinna föllnu, sem höfðu unnið nótt sem nýtan dag að framgangi hennar með ofstækisfullum ákafa, hafði náð tilgangi sínum: Móðurloginn var slokknaður á efnissviðinu.