Jump to content

Translations:Gabriel and Hope/11/is

From TSL Encyclopedia

Það var engin áreynsla og er engin áreynsla fyrir englaveru að hreyfa við efni þegar guðdómurinn gefur henni kraftinn. Og steinninn stóð ekki í vegi fyrir ljósinu frá fingrum mínum. Þegar ég þrýsti á hann eitt augnablik, datt mér í hug að þegar ég velti þessum steini frá mér myndi ég biðja Guð um að jafnvel á þeirri stundu hefði ég getað velt steini dauðans frá hverjum manni og konu á þessari dýrmætu plánetu þar til allir myndu verða lausir við ótta og kúgun.