Translations:Elementals/9/is
Appearance
Loftandar þjónusta himinhvolfunum og sjá um hreinsun loftsins og viðhalda loftþrýstingnum. Þetta má greina í alkemískum breytingum á veðri og hringrásum ljóstillífunar og úrkomu. Þessir náttúruvættir sem eru skapandi meistarar þenja út og draga saman loftkennda „líkama“ sína úr örsmæð til himinhæða. Þeir halda ávallt við loga hugarsviðsins sem samsvarar frumþætti loftsins — einum af þáttunum fjórum sem alkemistar til forna skilgreindu. Þess vegna eru loftandar þekktir sem frumþáttur loftsins. Þeir bregðast við tilskipunum yfirstjórnenda sinna, Aríes og Þórs.