Jump to content

Translations:Elementals/25/is

From TSL Encyclopedia

Sálgæðing trjáa og plantna af völdum tíva, sem stýra sérstökum náttúruvættum planta innan hvers jurtaríkis, útskýrir þá óafneitanlegu staðreynd að fólk sem samstillir andlegar stöðvar sínar ríki náttúrunnar getur talað við tré og plöntur. Þessar náttúruverur eru svo óteljandi margar að þær hlúa bókstaflega að öllu sem grær. Við þetta fæst áþreifanleg skynsvörun við þeim vitundarneista sem miðlað er til plöntunnar í gegnum „taugakerfi“ hennar. Lífskrafturinn í plöntum og dýrum hefur verið greindur með Kirlian ljósmyndum-ljósmyndun, sem leiðir í ljós áru (geislahjúp) alheimsorku, eða rafsegulsvið, sem einnig er eiginlegt manninum.